FORSÍÐA
STOFAN
ÞJÓNUSTA
GUÐBRANDUR
RAGNA
GREINAR
FRÓÐLEIKUR
HAFA SAMBAND
TENGLAR
Mea anima est tamquam tabula rasa - sál mín er sem óskrifað blað“ - Páll frá Feneyjum (ca. 1369-1429).

Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ - Einar Benediktsson.
 
Ragna Ólafsdóttir er sálfræðingur hjá Sálfræði-
ráðgjöfinni og annar tveggja eigenda.

Ragna lauk BA prófi í Sálfræði frá Háskóla Íslands l980 og Mastersprófi í Sálfræði frá London Schools of Economics 1982. Hún hefur lokið tveggja ára sérhæfðu námi í hugrænni atferlismeðferð og tveggja ára námi í handleiðslu í hugrænni atferlismeðferð.

Ragna starfar einnig sem sálfræðingur hjá Námsráðgjöf Háskóla Íslands og veitir háskólanemendum sálfræðilega ráðgjöf og náms og starfsráðgjöf. Hún hefur um árabil kennt við Háskóla Íslands, þ.a.m. nemendum í ljósmæðrafræðum um sálfræðileg efni og nemendum í námsráðgjöf. Auk þess hefur hún haldið fjölda námskeiða um sálfræðileg efni. Ragna hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð við kvíða, þunglyndi, hjóna og para - ráðgjöf við gagnkynhneigða og samkynhneigða. Einnig hefur hún sérhæft sig í meðferð við fæðingarþunglyndi og haldið fræðsluerindi og gefið út fræðslubækling þar að lútandi.

Ragna hefur um árabil starfað fyrir héraðsdóma á Íslandi, ýmist sem meðdómari eða matsmaður í forræðisdeilum.

Bókun viðtalstíma fer fram i síma 897 3754.
Netfang: ragna@hi.is

 
Sálfræðiráðgjöfin hefur nú verið starfandi í á tíunda ár og þótti tími til kominn að stofan kæmi sér upp vefsetri til kynningar á starfseminni.
> Lesa
„Íslenska orðið sál hefur flókna, margbrotna og svolítið óáþreifanlega merkingu svipað og samsvarandi orð í öðrum tungumálum.“
> Lesa
„Sálfræðingi er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls.“
> Lesa