FORSÍÐA
STOFAN
ÞJÓNUSTA
GUÐBRANDUR
RAGNA
GREINAR
FRÓÐLEIKUR
HAFA SAMBAND
TENGLAR
Mea anima est tamquam tabula rasa - sál mín er sem óskrifað blað“ - Páll frá Feneyjum (ca. 1369-1429).

Aðgát skal höfð í nærveru sálar“ - Einar Benediktsson.
 
Auður R. Gunnarsdóttir er sálfræðingur hjá Sálfræði-
ráðgjöfinni og annar tveggja eigenda.

Auður er sérfræðingur í klíniskri sálfræði. Hún lauk BA prófi frá Háskóla Íslands og Embættisprófi í klíniskri sálfræði frá Háskólanum í Bergen 1986. Auður hefur lokið tveggja ára sérhæfðu námi í hugrænni atferlismeðferð og tveggja ára námi í handleiðslu í hugrænni atferlismeðferð. Auður hefur starfa á Geðdeild Landspítalans; almennri geðdeild, áfengisdeild og barna og unglingageðdeild. Hún starfaði einnig við Sálfræðideild skóla á Reykjanesi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða um sálfræðileg efni.

Auður starfar einnig sem sálfræðingur hjá Námsráðgjöf Íslands þar sem hún veitir háskólanemendum sálfræðilega ráðgjöf og einnig náms og starfsráðgjöf. Hún hefur kennt við Háskóla Íslands um árabil. Auður hefur sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð m.a. við kvíða, þunglyndi. samskiptavandamálum og áfengisvandamálum. Auður hefur stýrt verkefnum, styrkt af Evrópuáætlunum Leonardo da Vinci, til að efla ráðgjöf varðandi sjálfsmat nemenda og nemenda með lesblindu.

Bókun viðtalstíma fer fram í síma 895 5504.
Netfang: arg[@]hi.is

 
Sálfræðiráðgjöfin hefur nú verið starfandi í á tíunda ár og þótti tími til kominn að stofan kæmi sér upp vefsetri til kynningar á starfseminni.
> Lesa
„Íslenska orðið sál hefur flókna, margbrotna og svolítið óáþreifanlega merkingu svipað og samsvarandi orð í öðrum tungumálum.“
> Lesa
„Sálfræðingi er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls.“
> Lesa